Heiti námskeiðs
Nám og kennsla á Netinu Braut/námsleið/kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Skyldunámskeið Misseri: vor Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS) Hámarksfjöldi nemenda Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið:
Að nemendur
þekki til kenninga og fræða um netnám og uppbyggingu náms- og þekkingarsamfélaga á Neti og geti nýtt slíka þekkingu, margvísleg verkfæri og aðferðir til að stuðla að netnámi og byggja upp námssamfélög á Neti
geti útbúið fræðsluefni, námseiningar (learning objects), og gagnvirkt efni á Netinu á ýmiss konar formi
geti skipulagt nemendamiðað námsumhverfi og hannað námsferli á vef þar sem námsefnið, vinnusvæði nemenda, námsmat, samskipti og hópvinna mynda heild
geti greint og fjallað um áhrif Netsins á nám, lífsstíl og samfélag
þekki til rannsókna og þróunarverkefna um nýtingu Nets í skólastarfi og geti aflað nýrrar þekkingar og unnið á skapandi hátt með nýtingu miðilsins í skólastarfi
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað er um miðlun, framsetningu og skipulag námsefnis og námsumhverfis á Neti, í fræðilegu samhengi. Einnig er fjallað um kenningar um netnám og uppbyggingu námssamfélaga á Neti. Þá er athygli beint að möguleikum og vandamálum tengdum netnotkun í skólastarfi og úrlausnum þeirra. Nemendur byggja upp stafræna verkmöppu (eportfolio). Námskeiðið er verkefnamiðað og að miklu leyti með fjarnámssniði. Nemendur og leiðbeinandi koma saman á nettímum/netfyrirlestrum, og nota þess á milli netmiðla til samskipta. Einnig er gert ráð fyrir staðbundnum tímum og netútsendingum. Leitast verður við að nota kennsluaðferðir sem byggja á veftækni og nýjum netverkfærum og þjálfa þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi. Námsmat
Þátttaka nemenda og verkefni á stafrænu formi (eportfolio) eru grunnur til námsmats. Verkefni skiptast í eftirfarandi flokka: Hönnun og miðlun (40%); námsumhverfi og netsamskipti (20%); nýting í skólastarfi (fræðileg umfjöllun með hagnýtri tengingu) (20%); valfrjálst verkefni (20%). Lesefni
Valið efni á vef tengt viðfangsefnum námskeiðsins.
Nám og kennsla á Netinu
Braut/námsleið/kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Skyldunámskeið
Misseri: vor
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið:
Að nemendur
- þekki til kenninga og fræða um netnám og uppbyggingu náms- og þekkingarsamfélaga á Neti og geti nýtt slíka þekkingu, margvísleg verkfæri og aðferðir til að stuðla að netnámi og byggja upp námssamfélög á Neti
- geti útbúið fræðsluefni, námseiningar (learning objects), og gagnvirkt efni á Netinu á ýmiss konar formi
- geti skipulagt nemendamiðað námsumhverfi og hannað námsferli á vef þar sem námsefnið, vinnusvæði nemenda, námsmat, samskipti og hópvinna mynda heild
- geti greint og fjallað um áhrif Netsins á nám, lífsstíl og samfélag
- þekki til rannsókna og þróunarverkefna um nýtingu Nets í skólastarfi og geti aflað nýrrar þekkingar og unnið á skapandi hátt með nýtingu miðilsins í skólastarfi
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:Fjallað er um miðlun, framsetningu og skipulag námsefnis og námsumhverfis á Neti, í fræðilegu samhengi. Einnig er fjallað um kenningar um netnám og uppbyggingu námssamfélaga á Neti. Þá er athygli beint að möguleikum og vandamálum tengdum netnotkun í skólastarfi og úrlausnum þeirra. Nemendur byggja upp stafræna verkmöppu (eportfolio). Námskeiðið er verkefnamiðað og að miklu leyti með fjarnámssniði. Nemendur og leiðbeinandi koma saman á nettímum/netfyrirlestrum, og nota þess á milli netmiðla til samskipta. Einnig er gert ráð fyrir staðbundnum tímum og netútsendingum. Leitast verður við að nota kennsluaðferðir sem byggja á veftækni og nýjum netverkfærum og þjálfa þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi.
Námsmat
Þátttaka nemenda og verkefni á stafrænu formi (eportfolio) eru grunnur til námsmats. Verkefni skiptast í eftirfarandi flokka: Hönnun og miðlun (40%); námsumhverfi og netsamskipti (20%); nýting í skólastarfi (fræðileg umfjöllun með hagnýtri tengingu) (20%); valfrjálst verkefni (20%).
Lesefni
Valið efni á vef tengt viðfangsefnum námskeiðsins.
[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni